Bókaupplestur og söngur í tilefni Norrænu bókasafnsvikunnar

Í tilefni Norrænu bókasafnsvikunnar verður lesið upp úr tveimur norrænum bókum á Kaffihúsinu í Bergi kl. 17:30 á morgun, 17. nóvember, en það eru Klemenz Bjarki Gunnarsson og Guðríður Sveinsdóttir sem lesa. Einnig flytja María Gunnarsdóttir og Eiríkur Stephensen uppáhalds norrænu lögin sín.

Allir velkomnir.

Athugasemdir