Berg um helgina

Senn líður að jólum og því höfum við í Bergi menningarhúsi nokkuð áreiðanlegar heimildir fyrir því að næsta sunnudag, 20. desember kl. 13:30, muni þeir Ketkrókur, Kertasníkur og Hurðaskellir koma og heimsækja okkur í Berg. Þeir sveinar ætla að skemmta okkur með söng og sögum. Kaffihúsið verður opið frá kl. 13:00-17:00 og því um að gera að gera sér glaðan dag í Bergi, hitta skemmtilega jólasveina og fá sér kaffi og með því.

Kl. 17:00 sama dag verða síðan tónleikar með þeim Írisi Hauks og Snorra Eldjárn en þar munu þau flytja jóla-dægurlög. Miðaverð er aðeins 1.000kr. og frítt er fyrir börn á grunnskólaaldri í fylgd með fullorðnum.

Athugasemdir