Berg menningarhús formlega tekið í notkun á morgun 5. ágúst

Við minnum á að Berg menningarhús á Dalvík verður formlega tekið í notkun á morgun, 5. ágúst. 

Hátíðin hefst með dagskrá kl.14:00 þar sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flytur ávarp og boðið verður uppá glæsileg tónlistaratriði.

Kl. 17 opna tvær myndlistarsýningar í húsinu.

Um kvöldið, kl. 20.30 verða fjölbreyttir tónleikar með listamönnum úr héraði.

Athugasemdir