Aðventuröltið í Bergi 9. desember - jólatónar

"Aðventuröltið" á Dalvík verður á dagskrá kl. 20:00-22:00 fimmtudagskvöldið 9. desember.

Samkór Svarfdæla kemur við í salnum í Bergi og syngur hátíðleg jólalög undir lok kvöldsins um kl. 21:15. Stjórnandi kórsins er Helga Bryndís Magnúsdóttir.

Allir velkomnir og frítt inn. Styrkt af Menningarsjóði Dalvíkurbyggðar.

Kaffihúsið verður opið fram eftir kvöldi á “aðventurölti”. Kræsingar, jólatónlist, jólaljósa- og kertastemning.


Athugasemdir