Uppselt á rokktónleika Karlakórs Dalvíkur 6. nóvember

Karlakór Dalvíkur og Matti Matt (Matti í Pöpunum) ásamt rokkhljómsveit verða með tónleika í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík föstudagskvöldið 6. nóv. kl. 20:30. Þetta eru rokktónleikar þar sem flutt verða Bítla- og Queenlög í rokkuðum útsetningum Guðmundar Óla Gunnarssonar.

Nú er ljóst að orðið uppselt er á tónleikana þetta kvöld en forsala miða fór fram í Húsasmiðjunni. Þeir sem enn hafa áhuga á að hlusta á þessa skemmtilegu tónleika geta beðið rólegir því að öllum líkindum verða haldnir auka tónleikar í lok þessa mánaðar og verða þeir auglýstir sérstaklega.

Athugasemdir