Laugardaginn 19. mars kl 16:00 kemur Kristján Jóhannsson stórsöngvari í Menningarhúsið Berg ásamt Jónasi Þóri undirleikara. Þessir tónleikar eru hluti af tónleikaröðinni Klassík í Bergi sem Mennningarfélagið Berg stendur fyrir ár hvert. Flutt verða íslensk, ítölsk og skandinavísk sönglög í bland við ítalskar aríur. Tónleikarnir verða kryddaðir með skemmtilegum litlum sögum og fróðleik.
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir