Mánudaginn 8. apríl n.k. kl. 11:00 opnar, eftir breytingar, nýtt kaffihús hér í Bergi. Kaffihúsið heitir Kaffihús - Rincon Canario og er rekið af spænskum félögum sem meðal annars reka veitingastað í Laxdalshúsi á Akureyri. Á boðstólnum verða meðal annarra rétta hádegissúpa og brauð, spænskir tapas réttir, kökur og kaffi. Það verður því bæði veitinga- og kaffihúsastemmning í Bergi. Í framtíðinni verður síðan hægt að kaupa spænskan varning á borð við sultur, súkkulaði og ýmislegt fleira.
Opnunartími kaffihús-Rincon Canario verður sem hér segir:
Mánudagar: 11:00-17:00
Þriðjudagar: 11:00-17:00
Miðvikudagar: 11:00-17:00
Fimmtudagar: 11:00-17:00
Föstudagar: 11:00-17:00
Laugardagar: 11:00-17:00
Sunnudagar: Lokað
Vonumst til að íbúar Dalvíkurbyggðar og aðrir gestir taki vel á móti þessari nýju viðbót í byggðarlagið.
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir