Jólabörnin Svavar Knútur, Hjalti og Lára halda í litla tónleikaferð um Norðurland og flytja hugljúfa jólatónlist á tónleikum á Dalvík, Húsavík og Blönduósi.
Fyrstu tónleikarnir fara fram í Bergi á Dalvík sunnudaginn 21. desember kl. 16.00. Sérstakur gestur á þeim tónleikum verður Kristjana Arngrímsdóttir.
Miðaverð er kr. 2.500. Frítt fyrir 16 ára og yngri.
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir