Menningarfélagið Berg ses. hefur ráðið Grétu Arngrímsdóttur sem nýjan framkvæmdarstjóra félagsins og tók hún við af Írisi Daníelsdóttur þann 1. október sl. Gréta er með grunnskólakennaramenntun frá Háskólanum á Akureyri og hefur starfað sem umsjónarkennari í Dalvíkurskóla frá 2006. Gréta er gift Júlíusi Júlíussyni og eru þau búsett á Dalvík. Gréta og Júlíus reka fyrirtækið Þau bæði ehf. og hefur Menningarfélagið einnig samið við þau um rekstur kaffihússins. Mun nýja kaffihúsið í Bergi opna eftir miðjan október.
Stjórn Menningarfélagið Berg ses. býður Grétu og Júlíus hjartanlega velkomin.
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir