„Fyrir ofan garð og neðan“ - Fræðsluþing 6. nóvember

„Fyrir ofan garð og neðan“ - Fræðsluþing 6. nóvember


„Fyrir ofan garð og neðan“
Fræðsluþing um forna garða í Svarfaðardal og á Árskógsströnd

Náttúrusetrið á Húsabakka heldur fræðsluþing um forna garða í Svarfaðardal og Árskógsströnd í Mennigarhúsinu Bergi laugardaginn
6. nóvember kl 13:00-16:00.

Í sumar fóru fram frumrannsóknir á nokkrum af þeim fjölmörgu fornu görðum sem er að finna í Svarfaðardal og Árskógsströnd. Garðar þessir eru án efa elstu mannvirki sem enn eru sýnileg á þessu svæði og segja mikla sögu um búskaparhætti frumbyggja héraðsins.

Á fræðsluþinginu verða m.a. kynntar niðurstöður öskulagagreininga á aldri garðanna, samanburður gerður á svarfælsku görðunum og sambærilegum görðum í Þingeyjarsýslu auk þess sem farið verður út í almenna búskaparsögu á svæðinu.

Flutt verða þrjú framsöguerindi:
Sveitarlangur og aðrir svarfdælskir garðar - Elín Ósk Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur.
Þjóðveldisgarðar í Þingeyjarsýslum - Árni Einarsson líffræðingur
Um búskaparhætti Svarfdælinga fyrr á öldum (um 900-1400)“ - Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur

Á eftir framsöguerindum verða almennar umræður og frummælendur svara fyrirspurnum.

Fræðslufundurinn er styrktur af Menningarráði Dalvíkurbyggðar.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Auglýsing

Athugasemdir