Upplestrarhátíð

Upplestrarhátíð

Í dag var upplestrarhátíð og forval fulltrúa fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin verður í Tjarnarborg í Ólafsfirði 5. mars. Þessir frábæru upplesarar, talið frá vinstri: Anton Freyr, Dagný, Ívar Breki, Amanda Guðrún og Jón Óli, hafa æft sig í allan vetur en ræktunarhluti keppninnar hófst á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Helga Ester umsjónarkennari þeirra hefur leiðbeint þeim með líkamsstöðu, raddstyrk og notkun talfæra, framburð, blæbrigði og túlkun og fleira og óhætt að segja að þau hafi verið sjálfum sér og móðurmálinu til sóma í dag á þessari virðulegu og hátíðlegu stund sem við starfsfólk, nemendur og foreldrar áttum saman.

Dómnefndin: Gerður Olofsson kennari í Árskógarskóla, Arnar Símonarson kennari í Dalvíkurskóla og Einar Þorsteinn Pálsson fulltrúi foreldra. Dómnefndin kom sér saman um að fulltrúi Árskógarskóla í lokakeppninni verði Amanda Guðrún Bjarnadóttir og varafulltrúi er Dagný Ásgeirsdóttir. Til hamingju kæru upplesarar.