UNICEF-hreyfingin, 95.428,00 kr. söfnuðust!

UNICEF-hreyfingin, 95.428,00 kr. söfnuðust!

Nemendur Árskógarskóla hafa undanfarin ár styrkt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, með því að hlaupa, ganga eða hreyfa sig eins og mögulegt er á ákveðnum tíma og safnað svo áheitum samkvæmt vegalengd. Nemendur stóðu sig eins og hetjur og söfnuðu mörgum tugum þúsunda (95.428,00 kr.) til styrktar börnum um allan heim. Meðfylgjandi er viðurkenning fyrir okkar framlag, nemendur, starfsfólk og foreldrar eiga þakkir skildar.