Undirbúningur fyrir jólin á Kötlukoti

Undirbúningur fyrir jólin á Kötlukoti

Nú er farið að styttast í jólin og börnin búin að leggja mikinn metnað í að útbúa jólagjafir handa foreldrum (því miður verða engar myndir birtar ;-) Aftur á móti hafa þau verið að gera ýmislegt fleira. Þau skreyttu jólatréð inn á bókasafni og hengdu upp seríur inn á Kötlukoti. Hluti af börnunum útbjó stóra jólamynd og sum gerðu óróa. Við höfum verið að gera ýmislegt fleira en því miður hefur myndavélin ekki alltaf verið með í för. Endilega kíkið á myndir.