Undirbúningur árshátíðar í mars 2013

Undirbúningur árshátíðar í mars 2013

Nú er árshátíð Árskógarskóla yfirstaðin og eiga börnin okkar mikið hrós skilið. Þau hafa unnið mikið og gott starf að undirbúningi með einum eða öðrum hætti. Einnig stóðu þau sig frábærlega á sýningunni sjálfri. Komin er mappa inn í myndasafnið okkar með myndum frá undirbúningi og nokkrar frá sýningardeginum sjálfum.