Í Árskógarskóla eru lausar til umsóknar tvær stöður umsjónarkennara á
grunnskólastigi (100% stöður).
Fjölbreytt og skemmtilegt starf sem felur m.a.
í sér verkgreinakennslu. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2019.
Í skólanum eru 40 börn frá 9 mánaða aldri til og með miðstigi grunnskóla.
Árskógarskóli er staðsettur við þjóðveginn, í Árskógi, 12 km frá Dalvík og 34 km frá Akureyri.
Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli/
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
• Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í teymi
• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
Upplýsingar gefur Jónína Garðarsdóttir skólastjóri í síma 460-4971, 899-4933.
Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið jonina.gardars@dalvikurbyggd.is og
verður móttaka umsókna staðfest.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2019
Árskógi, 621 Dalvíkurbyggð Sími: 460 4970 |
Skólinn er opinn frá Skólastjóri: Friðrik Arnarson |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 460-4973; 460-4970 / arskogarskoli@dalvikurbyggd.is