Niðurstöður foreldrakönnunar

Niðurstöður foreldrakönnunar

Fræðslusvið framkvæmdi könnun meðal foreldra leik- og grunnskólabarna í Dalvíkurbyggð nú í apríl og niðurstöður fyrir Árskógarskóla liggja fyrir og eru birtar á heimasíðu skólans undir "Mat á starfi skólans" og "niðurstöður". Skjalið má einnig nálgast hér. Við í Árskógarskóla erum afar ánægð og glöð með niðurstöðurnar sem eru mjög jákvæðar og benda einnig á þá þætti sem betur mega fara. Á þennan hátt, með ykkar þátttöku í mati á starfi skólans, getum við gert enn betur.