Árshátíðin okkar með Afríkuþema gekk þetta líka ljómandi vel. Allir sem einn stóðu sig með sóma og höfðu gaman saman. Alls voru 170 manns saman komnir að skemmta sér í Árskógi og flestir keyptu sér súpu, brauð og kaffi hjá foreldrafélaginu til styrktar skólastarfinu á eftir sýningu. Við í Árskógarskóla erum afar montin með magnaða sýningu, mikil vinna að baki í undirbúningi, metnaður og þvílíkir hæfileikar á öllum sviðum. Takk allir sem komuð. Í myndasafni er fullt af flottum myndum, kíkið endilega á þær í myndasafni.
Árskógi, 621 Dalvíkurbyggð Sími: 460 4970 |
Skólinn er opinn frá Skólastjóri: Friðrik Arnarson |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 460-4973; 460-4970 / arskogarskoli@dalvikurbyggd.is