Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátið Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk fór fram í Tjarnarborg í Ólafsfirði þriðjudaginn 12. mars. Þar lásu níu nemendur þrisvar sinnum og stóðu sig með prýði. Okkar fulltrúi, Amanda Guðrún Bjarnadóttir stóð sig frábærlega vel og varð í 2. sæti eftir mjög jafna "keppni". Við erum afar stolt af hennar framlagi. Á myndinni er Amanda ásamt stúlkum úr Fjallabyggð sem voru í 1. og 3. sæti.