Laust starf skólaliða

Laust starf skólaliða

Starf skólaliða (félagsheimili og skóli)

Við Árskógarskóla er laust til umsóknar 50% starf skólaliða frá janúar 2018.

Árskógarskóli hóf starfsemi í ágúst 2012 og er leik- og grunnskóli með um 40 nemendur. Upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu:

 http://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli/

Starfið felst aðallega í móttöku, skömmtun og frágangi á aðsendum mat í mötuneyti skólans í félagsheimilinu, þrifum og ræstingu sem og lítilsháttar innkaupum. Starfsmaðurinn þarf að vera sveigjanlegur og tilbúinn að sinna tilfallandi verkefnum í samvinnu við annað starfsfólk og með nemendum á leik- og grunnskólastigi í leik og námi utan og innan kennslustofu í skóla og félagsheimili.

Leitað er að aðila sem:

  • Hefur áhuga á vinnu með börnum.
  • Hefur til að bera góða samskiptahæfni.
  • Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði.
  • Hefur gleði og umhyggju að leiðarljósi.
  • Er snyrtilegur og ber virðingu fyrir umhverfi skólans.
  • Er reglusamur og samviskusamur.
  • Er hraustur á sál og líkama.
  • Hefur hreint sakarvottorð.

Árskógarskóli er reyklaus vinnustaður.

Vinnutíminn er 10-14 eða eftir samkomulagi sem hentar báðum aðilum. Æskilegt er að sá sem er ráðinn geti hafið störf í byrjun janúar.


Allar nánari upplýsingar gefur Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson skólastjóri

í síma 460-4971, 699-1303 eða gunnthore@dalvikurbyggd.is

Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið gunnthore@dalvikurbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.

Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2017