Kvenfélagskonur komu færandi hendi

Kvenfélagskonur komu færandi hendi

Í dag komu konur úr Kvenfélaginu Hvöt á Árskógsströnd og færðu okkur í Árskógarskóla sjónvarp að gjöf sem leysir af úrelt túbusjónvarp, einnig fær skólinn peningagjöf sem við ætlum að nýta til bókakaupa á bókasafnið okkar. Skólinn okkar býr svo vel að frábæru fólki í nærsamfélaginu sem styrkir allt okkar starf. Það er ómetanlegt að eiga svo góða að, takk kærlega fyrir okkur kvenfélagskonur á Árskógsströnd.

Hólmfríður kvenfélagskona, Gunnþór skólastjóri, Kolbrún kvenfélagskona, Kristrún kvenfélagskona og kennari.