Hjóladagur

Hjóladagur

Föstudaginn 28 júní var hjóladagur hér í leikskólanum. Börnin komu og hjóluðu hér fyrir framan enn einnig var mjög gaman að hjóla  og leika sér í polli sem var hér á svæðinu. Verktakar í kringum okkur tóku tillit til okkar og voru ekki á stórum bílum á meðan og viljum við þakka þeim kærlega fyrir tillitsemina. Hérna koma myndir frá þessum skemmtilega degi.