Gjöf frá kvenfélaginu Hvöt

Gjöf frá kvenfélaginu Hvöt

Skólinn okkar býr svo vel að frábæru fólki í nærsamfélaginu sem styrkir allt okkar starf. Kvenfélagið Hvöt, í samvinnu við kennara skólans, færði okkur höfðinglega gjöf sem inniheldur málörvunarefni "Lærum og leikum með hljóðin". Efnið nýtist báðum skólastigum og er kærkomin viðbót við kennslugögn skólans til þess að mæta hverju barni þar sem það er statt. Það er ómetanlegt að eiga svo góða að, takk kærlega fyrir okkur.