Fréttabréf desember

Fréttabréf desember

Tíminn líður hratt, á gervihnatta... jú mikið rétt, desember að renna í hlað með alla sína viðburði, gleði og gaman. Við ætlum að halda stundaskrá eins og kostur er í desember, láta okkur líða vel, tendra ljós og njóta þess að vera til. Í desember er eitt og annað um að vera svo vinsamlegast kynnið ykkur vel og vandlega fréttabréf desember. Sjáumst hress á jólaföndri 1. desember.