Eldri borgarar á Ströndinni, ömmur og afar

Eldri borgarar á Ströndinni, ömmur og afar

Kæru eldri borgarar, ömmur og afar á Árskógsströnd.

Viltu spila, lesa eða leika með okkur í Árskógarskóla á föstudaginn?

Okkur í skólanum langar að bjóða eldri borgurum á Ströndinni og ömmum og öfum skólans (sem eru auðvitað ekki öll eldri borgarar) að koma og spila við okkur, fá sér hressingu, skoða skólann og eiga góða stund saman. Nú er komið að því!

Föstudaginn 21. nóvember bjóðum við eldri borgurum og ömmum og öfum í heimsókn til okkar í skólann frá kl. 12:00-13:30.

Sjáumst í skólanum, nefndin.