Dagur leikskólans

Dagur leikskólans

6. febrúar var Dagur leikskólans. Hann var að sjálfsögðu haldin hátíðlegur hér í Árskógarskóla. Hér var opið hús og var gaman að sjá hvað margir foreldrar sáu sér fært um að mæta. Kötlukots börn voru búin að búa sér til þorrablótshatta, mættu í lopapeysum og voru búin að undirbúa kynningu á þorramat. Ásamt því tóku þau lagið. Frábær dagur og hér koma loksins myndir.