Bóndadagur

Bóndadagur

Í dag er bóndadagurinn haldinn hátíðlegur sem markar upphaf þorrans. Stelpurnar í 5.-7. bekk komu strákunum á óvart í kaffinu þar sem þær voru búnar að baka, kveikja á kertum, búa til vinakort fyrir hvern og einn í tilefni dagsins. Skólastjóranum var boðið að vera með enda bóndi! Frábært framtak hjá þessum kláru stelpum og Helgu umsjónarkennara og nú þegar erum við strákarnir byrjaðir að undirbúa óvænta uppákomu á konudaginn. Skemmtilegt uppbrot og góð samvera. myndirnar segja sína sögu.