Alþjóðlegur dagur einhverfunnar er á næsta leiti og föstudaginn 1.apríl næstkomandi hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja þannig athygli á málefnum einhverfra barna en blái liturinn hefur fest sig í sessi sem litur einhverfunnar um heim allan. Líkt og undanfarin ár er það BLÁR APRÍL – Styrktarfélag barna með einhverfu, sem stendur fyrir deginum.
Markmið bláa dagsins er að vekja athygli á einhverfu og fá landsmenn alla til að sýna einhverfum stuðning sinn. Með aukinni vitund og þekkingu á einhverfu byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins.
Síðustu ár hafa flestir skólar landsins og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir tekið þátt í bláa deginum með því að hafa bláa litinn í fyrirrúmi. Margir hafa brugðið á það ráð að setja myndir á instagram og facebook og merkja þær með myllumerkinu #blarapril sem hefur gætt daginn skemmtilegum blæ og hjálpað til við að breiða út þennan jákvæða boðskap.
Blái dagurinn er liður í hinu árlega vitundar- og styrktarátaki BLÁR APRÍL. Allt styrktarfé sem safnast rennur óskert til málefnisins en í ár er safnað fyrir gerð á uppbyggilegu og jákvæðu fræðsluefni um einhverfu sérstaklega ætlað börnum. Hægt er að styrkja málefnið um 1000 kr. með því að hringja í símanúmerið 902-1010 en einnig er tekið við frjálsum framlögum inn á reikning styrktarfélagsins ef einhverjir kjósa frekar að fara þá leið (kennitala: 440413-2340 og reikningsnúmer: 111-15-382809).
Við hlökkum til að sjá ykkur öll í bláu föstudaginn 1. apríl. Stöndum saman og fögnum fjölbreytileikanum. Því lífið er blátt á mismunandi hátt! #blarapril
Endilega fylgist með á facebook síðu styrktarfélagsins: http://facebook.com/einhverfa
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Einhverfa er fötlun (en ekki sjúkdómur) og því meðfædd.
Einhverfa er röskun í taugaþroska og einkennin koma venjulega í ljós fyrir þriggja ára aldur
Einkennin birtast helst í skertri getu til að tjá sig, félagslegu samspili og áráttukenndri hegðun
1 af hverju 68 barni fæðist með röskun á einhverfurófi (1,5%) skv. nýjum erlendum rannsóknum
Einhverfa er 4-5 sinnum algengari meðal drengja en stúlkna
Það skiptir sköpum að börn með einhverfu fái greiningu og viðeigandi aðstoð sem allra fyrst
Engin tengsl eru milli bólusetninga og einhverfu (hefur verið afsannað af vísindasamfélaginu)
Birtingarmyndir einhverfu eru margar og birtist aldrei alveg eins hjá hverjum og einum
Einhverfir hafa margt fram að færa og hafa sína styrkleika - eins og allir aðrir
Árskógi, 621 Dalvíkurbyggð Sími: 460 4970 |
Skólinn er opinn frá Skólastjóri: Friðrik Arnarson |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 460-4973; 460-4970 / arskogarskoli@dalvikurbyggd.is