Útivistardagur Dalvíkurskóla verður fimmtudaginn 6. september.
Útlit er fyrir fyrirtaks gönguveður þann dag.
Á hverju hausti er útivistardagur í Dalvíkurskóla en þá ganga nemendur skólans fyrirfram ákveðnar gönguleiðir, miskrefjandi eftir aldri nemenda. Við biðjum foreldra um að huga að klæðnaði og skófatnaði nemenda fyrir þann tíma. Foreldrar eru velkomnir í gönguferðirnar.
Markmið göngudagsins falla vel að grunnþáttum menntunar í heilbrigði og velferð en þar er lögð áhersla á að leiðbeina nemendum um að temja sér heilbrigða lífshætti og ábyrga umgengni við líf og umhverfi. Markvisst hreyfiuppeldi leggur grunn að líkamlegri, andlegri og félagslegri færni nemenda.
Markmið Göngudags Dalvíkurskóla eru:
•Að efla heilbrigði, félagsfærni og náttúrulæsi
•Auka þátt útiveru, hreyfingar og hollustu í skólastarfinu
•Auka félagsfærni, kynnast samnemendum og starfsmönnum skólans í öðrum aðstæðum en hefðbundnu skólastarfi
•Læra um sitt nærumhverfi, örnefni, landslag og sögur sem tengjast svæðinu
•Læra um gróður og jurtir,
auk þess sem nemendur kynnast hver æskilegur búnaður er í gönguferðum s.s. hvernig klæðnaður hentar í dagsgöngu, að klæða sig samkvæmt veðri og læra að ganga í hóp með fararstjóra og fylgja reglum sem gilda um slíkar ferðir.