Grunnskóli Dalvíkurbyggðar
Vegna forfalla vantar umsjónarkennara tímabundið í 4. bekk hjá Grunnskóla Dalvíkurbyggðar
Hæfniskröfur:
- Grunnskólakennaramenntun
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Hefur metnað í starfi og getu til að vinna í hóp
- Tilbúin/n að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
- Tilbúin/n að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum svo sem Byrjendalæsi og útikennslu.
Grunnskóli Dalvíkurbyggðar er 300 nemenda grunnskóli með tvo kennslustaði. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Í skólanum er verið að vinna að nokkrum þróunarverkefnum svo sem Byrjendalæsi og Töfraheimi stærðfræðinnar (sem gengur út á það efla kennara í stærðfræðikennslu). Grunnskóli Dalvíkurbyggðar er skóli á Grænni grein og stefnir að því að fá Grænfánann næstakomandi haust. Í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppeldi til ábyrgðar.
Umsóknarfrestur er til 07. október
Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð, um 40 km. norðan við Akureyri. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu. Þar er blómlegt menningarlíf og fjölbreyttir möguleikar til íþróttaiðkunar og útivistar. Sveitarfélagið á metnaðarfulla skólastefnu. Að búa í Dalvíkurbyggð er kjörið fyrir fólk á öllum aldri, barnafjölskyldur, útivistarfólk og þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna. Það er ómetanlegt að geta stigið út úr erli hvunndagsins og dregið að sér kraft sjávarins og fjallanna og endurnært þannig sálina.