Starf umsjónarkennara í Dalvíkurskóla
Óskað er eftir umsjónakennara í 3. – 4. bekkjar teymi
Hæfniskröfur:
- Grunnskólakennarapróf
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í hóp
- Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
- Góð færni í bekkjarstjórnun
- Mikill áhugi á skólaþróun
- Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
- Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum
Dalvíkurskóli er 240 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking og færni, virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Í skólanum er unniðsamkvæmt hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar, hann er Grænfánaskóli og er mikil áhersla lögð á skólaþróun. Í skólanum er unnið að tilraunaverkefni með spjaldtölvur, unnið er að aukinni samkennslu árganga, teymisvinnu kennara og rík hefð er fyrir fjölbreyttum kennsluháttum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi..
Umsóknarfrestur er til 10. október 2014
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8631329.
Senda skal umsókn og ferilsskrá með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.