Við erum að leita að frábærum umsjónarkennurum, frá 1. ágúst 2014, í okkar öfluga starfsmannahóp í Dalvíkurskóla. Okkar vantar kennara bæði á yngra og eldra stig.
Gildi Dalvíkurskóla eru: Þekking og færni, virðing og vellíðan
Dalvíkurskóli er grunnskóli með um 250 nemendum í 1.-10. bekk. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar, við erum Grænfánaskóli og leggjum mikla áherslu á skólaþróun. Í skólanum er unnið að tilraunaverkefni með spjaldtölvur í einum árgangi, unnið er að aukinni samkennslu árganga og teymisvinnu kennara og rík hefð er fyrir fjölbreyttum kennsluháttum.
Dalvíkurbyggð er tæplega 2000 manna sveitarfélag á fallegum stað við Eyjafjörð, steinsnar frá Akureyri. Á Dalvík er frábær aðstaða til íþróttaiðkunar og útiveru, glæsilegt menningarhús og barnvænt umhverfi.
Menntunarkröfur:
- Réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Framhaldsmenntun er kostur.
Hæfniskröfur:
- Hæfni í samvinnu og samskiptum - reynsla af teymiskennslu er kostur.
- Góð færni í bekkjarstjórnun - reynsla af vinnu eftir uppbyggingastefnunni er kostur.
- Mikill áhugi á skólaþróun.
- Áhugi á kennslu og vinnu með börnum.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Gleði og umhyggja.
- Hreint sakarvottorð.
Þekking og reynsla af notkun upplýsingatækni í skólastarfi, byrjendalæsi og/eða Orð af orði er æskileg en ekki skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 22. maí 2014.
Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli
Upplýsingar gefur Björn Gunnlaugsson skólastjóri í síma 460-4983 eða bjorn@dalvikurbyggd.is .
Senda skal umsókn og ferilskrá með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila á netfangið bjorn@dalvikurbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.