Sundlaug Ólafsfjarðar lokuð til 18.júní.

Sundlaug Ólafsfjarðar lokuð til 18.júní.

Eins og flestir vita er sundlaugin á Dalvík lokuð og verður það þar til í júní, á meðan hún er lokuð hefur þeim sem eiga kort í sundlauginni boðist að nýta sundlaugina á Ólafsfirði endurgjaldslaust. 
Nú er hún hinsvegar einnig lokuð vegna viðhalds og verður lokuð til 18.júní n.k. það má því búast við einmuna veðurblíðu næstu daga þar sem báðar sundlaugar eru lokaðar. 
En vonast er til þess að framkvæmdum verði lokið í Ólafsfirði 18.júní og hjá okkur á Dalvík í júlí.