Karlsrauðatorg 9 og 11 - Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020

Karlsrauðatorg 9 og 11 - Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020

Karlsrauðatorg 9 og 11
Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020
Niðurstaða sveitarstjórnar
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti þann 18.febrúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.

Breytingin tekur til lóða nr. 9 og 11 við Karlsrauðatorg og felur í sér að umræddar lóðir verða á svæði sem skilgreint er sem miðbæjarsvæði 306-M í stað íbúðarsvæðis ÍB-303 áður. Forsenda breytingarinnar eru áform um rekstur gistiheimilis á lóð Karlsrauðatorgs 11.
Skipulagsuppdrátt má sjá hér.
Breytingin telst óveruleg og hefur fengið meðferð skv. 2.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta sent fyrirspurn á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is

Skipulagsfulltrúi