Innheimtufulltrúi óskast - Ath framlengdur umsóknarfrestur.

Innheimtufulltrúi óskast - Ath framlengdur umsóknarfrestur.

Langar þig að starfa í metnaðarfullu og skemmtilegu teymi?

Dalvíkurbyggð leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf innheimtufulltrúa á fjármála- og stjórnsýslusviði.
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið og helstu verkefni

  • Reikningagerð.
  • Umsjón með innheimtumálum sveitarfélagsins.
  • Greiðsla á reikningum og kröfum.
  • Móttaka á greiðslum reikninga og gjalda.
  • Afstemmingar og dagleg umsýsla bankareikninga.
  • Almenn upplýsingagjöf og símavarsla í Þjónustuveri.
  • Ýmis innri ráðgjöf og þjónusta.
  • Ýmis tilfallandi verkefni auk afleysinga innan sviðsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s viðskiptafræði.
  • Góð þekking og haldbær reynsla af sambærilegum störfum.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er kostur.
  • Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni, s.s. Excel.
  • Þekking og reynsla af Dynamics 365 B.C. (NAV) er æskilegt.
  • Hæfni til að greina gögn og upplýsingar.
  • Skipulagsfærni, nákvæm vinnubrögð og árverkni.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Metnaður til árangurs og jákvæðni.
  • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.
Sótt er um starfið heimasíðu Mögnum, www.mognum.is.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júlí 2025

Með umsókn þarf að fylgja ítarleg ferilskrá auk staðfestra afrita af prófskírteinum, sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir, sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir, telma@mognum.is.