Á mánudaginn 11. maí varð Tómas Ingi 6 ára
og héldum upp á afmælið hans hér í Kátakoti þann dag.
Tómas Ingi bjó sér til þessa fallegu kórónu, blés á kertin 6
og bauð svo öllum í Sólkoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Einnig fór hann út og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Tómasi Inga og fjölskyldu hans
innilega til hamingju með afmælið frá öllum í Kátakoti