Á föstudaginn héldum við upp á 3 ára afmælið hans Sigurkarls, en hann átti afmæli á laugardaginn 15. ágúst.
Sigurkarl málaði á kórónuna sína.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Við flögguðum að sjálfsögðu í tilefni dagsins.
Eftir sönginn fengu allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Sigurkarli og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti