Þann 16. apríl varð hún Lovísa 6 ára
og héldum upp á afmælið hennar hér í Kátakoti á miðvikudaginn 6. maí.
Lovísa bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 6
og bauð svo öllum í Sólkoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Einnig fór hún út og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Lovísu og fjölskyldu hennar
innilega til hamingju með afmælið frá öllum í Kátakoti.