Í dag héldum við upp á 2 ára afmælið hans Kristbjörns Gísla en hann á afmæli á morgun 21 .apríl (sumardaginn fyrsta).
Kristbjörn Gísli málaði á flottu kórónuna sína.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Eftir sönginn fengu sér allir ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Kristbirni Gísla og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti