Á sunnudaginn þann 29. maí verður Hilmir Þeyr 4 ára og héldum við upp á afmælið hans hér í Krílakoti í dag.
Hilmir málaði á flottu kórónuna sína og flaggaði hann að sjálfsögðu Íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Eftir sönginn fengu sér allir ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Hilmi og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti