Komið sæl
Á morgun, fimmtudaginn 9. júlí kl. 10:30, verður tekin fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Krílakot og munu framkvæmdir hefjast í kjölfarið. Það er ánægjulegt að stækkun á leikskólanum sé að verða að veruleika og munu börn og starfsfólk í Krílakoti og Kátakoti fylgjast með þegar Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, tekur fyrstu skóflustunguna.
Gert er ráð fyrir að verktími standi fram í ágúst 2016.
Ásamt 467m2 viðbyggingu verða gerðar breytingar á núverandi húsnæði leikskólans.