Í dag héldum við upp á 4 ára afmælið hans Egils Bjarka, en hann á afmæli í lokunni þann 16. júlí.
Egill Bjarki málaði á kórónuna sína.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Við flögguðum að sjálfsögðu í tilefni dagsins.
Eftir sönginn fengu allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Agli Bjarka og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti