Í dag 31. maí varð Arnór Atli 5 ára og af því tilefni
héldum við upp á afmælið hans hér í Kátakoti í dag.
Arnór Atli bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 5 og
bauð svo öllum í Mánakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Að því loknu fór hann út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Arnóri Atla og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Kátakoti.