Valgerður Fríður 3 ára

Valgerður Fríður 3 ára

Í dag 3. maí  héldum við upp á 3 ára afmælið hennar Valgerðar Fríðar hér í Krílakoti..

Valgerður Fríður  málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Valgerður Fríður öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Valgerði Fríði og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.