Vala Katrín 4 ára

Vala Katrín 4 ára

Í dag 29. maí héldum við upp á 4 ára afmælið hennar Völu Katrínar hér í Krílakoti..

Vala Katrín málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur.

Eftir sönginn bauð Vala Katrín öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Völu Katrínu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.