Íþrótta- og æskulýðsráð - 89, frá 02.05.2017
Málsnúmer 1704012F
Vakta málsnúmer
Til afgreiðslu:
2. liður.
.1
201704048
Ályktun ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði 2017
Íþrótta- og æskulýðsráð - 89
Lögð fram til kynningar ályktun ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði sam haldin var á Laugarbakka 2017.
Niðurstaða þessa fundar
Lagt fram tiil kynningar
.2
201702061
Vegna framkvæmdastjora
Íþrótta- og æskulýðsráð - 89
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkurinn verður greiddur til GHD fyrir árið 2017. Íþrótta- og æskulýðsráð mun fara yfir stöðuna með GHD í haust og skal þá meta hvernig til tókst í sumar og í framhaldinu skoðað hvernig starf þurfi að vera í kringum rekstur á golfvellinum.
Bókun fundar
Til máls tók;
Guðmundur St. Jónsson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:28.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum afgreiðslu íþrótta- og æskulýðsráðs, Guðmundur St. Jónsson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
.3
201703034
Ársreikningar íþróttafélaga 2016
Íþrótta- og æskulýðsráð - 89
Íþrótta- og æskulýðsráð fór yfir ársreikninga íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð. Síðar á fundinum koma fulltrúar íþróttafélagana á fund ráðsins og farið verður yfir stöðu félanna.
Niðurstaða þessa fundar
Lagt fram tiil kynningar
Bókun fundar
Guðmundur St. Jónsson kom inn á fundinn að nýju kl.16:29.
.4
201703024
Vorfundur íþrótta- og ækulýðsráðs 2017
Íþrótta- og æskulýðsráð - 89
Undir þessum lið og það sem eftir var fundar komu eftirfarandi aðilar á fundinn til að kynna niðurstöður ársreiknings og skýrslu sem og til samráðs um aðra þætti:
Kristján Ólafsson - UMFS
Hjördís Jóna Bóasdóttir - Fimleikadeild UMFS
Stefán Garðar Níelsson - Dalvík-Reynir
Bjarni Jóhann Valdimarsson - Golfklúbburinn Hamar
Lilja Björk Reynisdóttir - Hestamannafélagið Hringur
Snæþór Arnþórsson - Skíðafélag Dalvíkur
Marinó Þorsteinsson - Ungmennafélagið Reynir
Hólmfríður Gíslasdóttir - Sundfélagið Rán
Guðríður Sveinsdóttir - Blakfélagið Rimar
Fulltrúi frá Þorsteinni Svörfuði boðaði forföll
Fulltrúar félaganna fóru yfir rekstur og starfsemi félaganna.
Rætt var um tryggingarmál, uppbyggingu íþróttasvæða, kostnað við rekstur félaga og styrkjamál.
Óskað eftir því að fulltrúar félaganna myndu skoða hvort það væri tilefni til að tilnefna í haust aðila sem hlýtur heiðursviðurkenningu íþrótta- og æskulýðsráðs. Óskað verður eftir því formlega í haust, samhliða því þegar óskað verður eftir tilnefndingum til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar.
Formaður íþrótta- og æskulýðsráðs þakkaði fundarmönnum kærlega fyrir fundinn og ítrekaði hversu mikilvægu starfi fundargestir væru að sinna innann sinna félaga.
Niðurstaða þessa fundar
Lagt fram tiil kynningar
Bókun fundar
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu, eru því þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar lagðir fram til kynningar.