Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í Kirkjuveg 9-12, íbúð 104 á Dalvík. Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á einni hæð í litlu fjórbýli rétt við Dalbæ - stærð íbúðarinnar er 64,3 m²
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Forstofa og gangur eru með plast parketi á gólfi og tvöföldum skáp.
Eldhús er með plast parketi á gólfi og innréttingu, hvít og beyki með flísum á milli skápa.
Stofa er með plast parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Rennihurð er úr stofunni út á verönd.
Svefnherbergi er með dúk á gólfi og stórum fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu, upphengdu wc, sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla er með dúk á gólfi, skáp, hillum og tengi fyrir þvottavél. Lúga er í loftinu upp á loft.
Snyrtileg hellulögð sameign er á milli íbúða.
Dalvíkurbyggð óskar eftir kauptilboðum í eignina og skulu kauptilboð gerð hjá Hvammi Eignamiðlun.
Tilboðsfrestur er til kl 16:00 fimmtudaginn 12. mars 2020.
Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til þess að taka hvaða kauptilboði sem er, eða hafna öllum.