Bæjarstjórn(233); 21.02.2012
22.02.2012Bæjarstjórn - 233. fundur
haldinn fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, þriðjudaginn 21. febrúar 2012
og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu:
Björn Snorrason, Jóhann Ólafsson, Kristján Hjartarson, Svanfríður Inga Jónasdóttir, Valdís Guðbrandsdóttir, Marinó Þorsteinsson, Þórhalla Karlsdóttir, Guðrún Pálína Jóhannsdóttir.
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Sveinn Torfason boðaði forföll og Þórhalla Karlsdóttir, varamaður, mætti í hans stað.
Guðmundur St. Jónsson boðaði forföll og Marinó Þorsteinsson, varamaður, mætti í hans stað.
Kristján E. Hjartarson, 1. varaforseti, sá um fundarstjórn vegna forfalla forseta bæjarstjórnar
Dagskrá:
1. 1202005F - Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 617
1.1. 201112069 - Tilboð í leigu á Húsabakka.
Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
2. 1202006F - Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 618
2.1. 201202039 - Bæjarlögmaður fyrir Dalvíkurbyggð
2.2. 201202032 - Frá Greiðri leið; Hluthafafundur 16.02.2012.
Samþykkt samhljóða.
2.3. 201111059 - Stofnun nýs skóla í Árskógi; starfsmannahald.
Til máls tóku:
Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Valdís Guðbrandsdóttir, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar.
Marinó Þorsteinsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar.
Samþykkt með 5 atkvæðum, Valdís Guðbrandsdóttir og Marinó Þorsteinsson taka ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
3. 1202002F - Landbúnaðarráð - 72
3.1. 201202026 - Samþykkt um búfjárhald, endurskoðun 2012
Til máls tók:
Jóhann Ólafsson.
3.2. 201111055 - Umsókn um búfjárleyfi
Samþykkt samhljóða.
3.3. 201202028 - Breyting á samþykkt um Hunda- og kattahald í Dalvíkurbyggð
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
4. 1202003F - Umhverfisráð - 222
4.1. 201202066 - Upsir, breyting á aðalskipulagi
Til máls tóku:
Kristján E. Hjartarson,sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi.
Jóhann Ólafsson, 2. varaforseti, tók við fundarstjórn undir þessum lið.
Samþykktur með 5 atkvæðum, Þórhalla Karlsdóttir situr hjá og Kristján E. Hjartarson greiðir ekki atkvæði vegna vanhæfis.
Kristján E. Hjartarson kom inn á fundinn að nýju og tók við fundarstjórn.
4.2. 201112047 - Deiliskipulag í landi Upsa
4.3. 201202065 - Skíðadalsvegur, framkvæmdaleyfi
Samþykkt samhljóða.
4.4. 201202027 - Samningur um frekari flokkun úrgangs
4.5. 201202031 - Skíðadalsvegur, rykmengun
4.6. 201202058 - Svæði fyrir lausagöngu hunda
4.7. 201202056 - Hraðahindranir
4.8. 201202064 - Mótorkrossakstur á svæði Skíðafélags Dalvíkur
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
5. 1202004F - Bæjarstjórn - 232
Til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:43.

Dalvíkurbyggð








