Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

Landbúnaðarráð(72); 15.02.2012

20.02.2012

Landbúnaðarráð - 72. fundur
haldinn fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, miðvikudaginn 15. febrúar 2012
og hófst hann kl. 13:15


Fundinn sátu:
Jón Þórarinsson, Trausti Þórisson, Elín Rósa Ragnarsdóttir, Sveinn Torfason, Daði Valdimarsson, Þorsteinn K. Björnsson, Ingvar Kristinsson.

Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson, Sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs

Dagskrá:

1. 201202026 - Samþykkt um búfjárhald, endurskoðun 2012
Landbúnaðarráð hefur verið að endurskoða Samþykkt um búfjárhald í Dalvíkurbyggð og hefur fengið ýmsa aðila til þess að fá álit og tillögur. Þar má nefna Ólaf Dýrmundsson og fjallskilastjóra í Dalvíkurbyggð.
Landbúnaðarráð samþykkir að óska eftir áliti Bændsamtaka Íslands á framlagðri Samþykkt um búfjárhald í Dalvíkurbyggð.

2. 201111055 - Umsókn um búfjárleyfi
Með bréfi sem dagsett er 11. nóvember 2011 óskar Sigurður Guðmundsson, Bessastöðum, leyfis til að halda kindur að Bessastöðum. Hann hefur hug á að hefja búrekstur haustið 2012.
Landbúnaðarráð samþykkir erindir en bendir Sigurði á að fylla þarf út umsókn um framangreint efni.

3. 201202028 - Breyting á samþykkt um Hunda- og kattahald í Dalvíkurbyggð
Í Dalvíkurbyggð hefur verið til sameiginleg samþykkt um hunda- og kattahald. Vegna ýmissa orsaka er talið heppilegt að breyta formi á framangreindri samþykkt og hafa þær tvær og ítarlegri. Nokkur tími er síðan að samþykkt um katthald var afgreidd í landbúnaðarráði og nú er komið að samþykkt um hundahald.
Landbúnaðarráð samþykkir að senda framagreindar samþykktir um til skoðunar hjá umhvefisráðuneyti og og öðrum þeim sem um þær þurfa að fjalla.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00


Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Þjónustuver
  • Fjölmenningasetur
  • Skólamál í Árskógi
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu

Viðburðadagatal

« maí 2012 »
m þ m f f l s
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31