Bæjarráð(618); 16.02.2012
20.02.2012Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 618. fundur
haldinn fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, fimmtudaginn 16. febrúar 2012
og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu:
Björn Snorrason, Jóhann Ólafsson, Kristján Hjartarson, Guðmundur St. Jónsson, Svanfríður Inga Jónasdóttir, Guðrún Pálína Jóhannsdóttir.
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá:
1. 201202039 - Bæjarlögmaður fyrir Dalvíkurbyggð
Bæjarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerðu grein fyrir þeirri umræðu sem átt hefur sér stað í framkvæmdastjórn um þörf fyrir aðgengi að þjónustu bæjarlögmanns fyrir Dalvíkurbyggð.
Til umræðu hvort endurskoða eigi þá ákvörðun, sem tekin var í upphafi síðasta kjörtímabils, um að Dalvíkurbyggð hafi ekki ákveðinn bæjarlögmann á sínum snærum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða málið frekar í samræmi við umræður á fundinum. Um væri að ræða þjónustu lögmanns skv. samningi þar um en ekki ráðningu starfsmanns.
2. 201202032 - Frá Greiðri leið; Hluthafafundur 16.02.2012.
Tekið fyrir bréf frá Greiðri leið ehf., dagsett þann 8. febrúar 2012, þar sem boðað er til hluthafafundar í Greiðri leið ehf. fimmtudaginn 16. febrúar 2012 kl. 14:30.
Bæjarráð samþykkir að formaður bæjarráðs sæki fundinn f.h. Dalvíkurbyggðar og fari með umboð Dalvíkurbyggðar á fundinum.
Björn Snorrason boðaði forföll undir þessum lið og vék af fundi.
3. 201111059 - Stofnun nýs skóla í Árskógi; starfsmannahald.
Undir þessum lið komu á fund bæjarráðs Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, verðandi skólastjóri Árskógarskóla, Gísli Bjarnason, skólastjóri Grunnskóla Dalvíkurbyggðar, og Jón Steingrímur Sæmundsson, launafulltrúi.
Einnig komu á fundinn Ásgeir Örn Jóhannsson, hdl. og Ólafur Rúnar Ólafsson, hrl. frá lögmönnum PACTA.
Til umræðu stofnun nýs skóla í Árskógi og þættir er varða starfsmannahald í nýjum skóla.
Hildur Ösp, Gunnþór, Gísli, Jón Steingrímur, Ásgeir Örn og Ólafur Rúnar viku af fundi.
Bæjarráð samþykkir að farin verði leið (A); að öllum starfsmönnum er starfa við Árskógarskóla og leikskólann Leikbæ verði sagt upp störfum og störf við nýjan skóla verði auglýst laus til umsókna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:13

Dalvíkurbyggð








