Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

Bæjarstjórn(232); 14.02.2012

20.02.2012

 

Bæjarstjórn - 232. fundur
haldinn fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, þriðjudaginn 14. febrúar 2012
og hófst hann kl. 16:15


Fundinn sátu:
Björn Snorrason, Guðmundur St. Jónsson, Jóhann Ólafsson, Kristján Hjartarson, Svanfríður Inga Jónasdóttir, Sveinn Torfason, Valdís Guðbrandsdóttir, Guðrún Pálína Jóhannsdóttir.

Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Dagskrá:

1. 1201017F - Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 613
1.1. 201111004 - Frá umhverfis- og tæknisviði; Framkvæmdir og rekstur ársins 2011.
1.2. 201201060 - Frá Eyþingi; Vaðlaheiðargöng.
1.3. 201201047 - Frá Rarik; Viðhaldsgjald fyrir götulýsingu og breytt eignarhald.
1.4. 201111063 - Trúnaðarmál.
1.5. 201111090 - Frá 231. fundi bæjarstjórnar þann 24. janúar 2012; Þriggja ára áætlun 2013-2015.
Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.


2. 1201020F - Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 614
2.1. 201112069 - Tilboð í leigu á Húsabakka.
Til máls tóku:

Svanfríður Inga Jónasdóttir, sem leggur til að bæjarstjórn feli bæjarráði fullnaðarumboð til þess að afgreiða málið og samninga vegna leigu á Húsabakka.
Jóhann Ólafsson, sem m.a. gerði grein fyrir vanhæfi sínu og tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu um málið.
Guðmundur St. Jónsson.
Kristján E. Hjartarson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu.
Björn Snorrason, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu í þessu máli.
Tillaga Svanfríðar Ingu samþykkt með 4 atkvæðum, Kristján E. Hjartarson, Jóhann Ólafsson og Björn Snorrason tóku ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.


3. 1201021F - Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 615
3.1. 201201069 - Leiga og sala á íbúðum í eigu sveitarfélagsins; staða mála.
3.2. 201201040 - Frá Vinnuvernd; Drög að samningi um trúnaðarlæknir.
Til máls tók:

Valdís Guðbrandsdóttir.
Samþykkt samhljóða, með breytingu á ártali hvað varðar lok samningstíma, 2013 í stað 2012.

3.3. 201201039 - Þjóðlendumálið.
3.4. 201112056 - Mellomårsmode í Hamar 11.-13. apríl 2012.

Til máls tók:
Kristján E. Hjartarson, og gerði grein fyrir að hann tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Kristján E. Hjartarson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis. Fram kom að fundurinn hefst 7. mars n.k. í stað 8. mars n.k.
3.5. 201201067 - Frá Ríkiskaupum; Aðild sveitarfélaga að rammasamningum Ríkiskaupa 2012.
Samþykkt samhljóða.
3.6. 201111063 - Trúnaðarmál.
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.


4. 1202001F - Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 616
4.1. 201111059 - Frá fræðslu- og menningarsviði; Stofnun nýs skóla í Árskógi.
4.2. 201112002 - Frá umhverfis- og tæknisviði; Bruna- og öryggiskerfi í stofnunum sveitarfélagsins.
4.3. 201201069 - Frá félagsmálasviði og fjármála- og stjórnsýslusviði; Leiga og sala á íbúðum í eigu sveitarfélagsins; staða mála.
Samþykkt samhljóða að veita sviðstjórum félagsmálasviðs og fjármála- og stjórnsýslusviðs að ákveða á hvaða tímapunkti íbúðir í eigu Dalvíkurbyggðar fari á sölu samkvæmt þeirri tillögu sem samþykkt var í bæjarráði.
4.4. 201111063 - Frá Bergmenn ehf; Samningur.
Til máls tóku:

Valdís Guðbrandsdóttir, m.a. sem leggur fram eftirfarandi bókun:
Sá samningur sem gerður er við Bergmenn ehf. tekur eingöngu til þess að lenda þyrlu á landi Dalvíkurbyggðar, með borgandi ferðamenn á þeirra vegum, í þeim tilgangi að stunda skíðamennsku; á skíðum, snjóbrettum eða sambærilegum búnaði, þ.e. að lenda þyrlu til að hleypa slíkum farþegum frá borði og/eða aftur um borð. Þessi samningur skerðir því ekki rétt annarra til að fara um landið ef ekki er notuð þyrla til að þjóna borgandi ferðamönnum.

Jóhann Ólafsson, sem m.a. leggur fram eftirfarandi tillögu ásamt Sveini A. Torfasyni:
Við undirritaðir leggjum til að samningi við Bergmenn ehf. verði vísað til umhverfis- og landbúnaðarráðs til umsagnar. Einnig verði haldinn íbúafundur þar sem samningurinn er kynntur íbúum.

Svanfríður Inga Jónasdóttir, sem m.a. leggur til eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn beinir því til Bergmanna ehf. að sýna sérstaka aðgát þegar komið er fram á vor og bændur fara að sleppa fé í afrétt og bendir í því sambandi sérstaklega á 6. grein samningsins þar sem segir að Bergmenn skuli ,,kappkosta að tryggja að flugið raski ekki ró manna og dýra með hávaða eða reglubundnu yfirflugi". Þá er mikilvægt að í því samkomulagi sem gert verður um umgengni og umferðarrétt almennings á svæðinu frá 1. mars til 15. júní, verði sérstaklega fjallað um þennan þátt.

Guðmundur St. Jónsson.

Sveinn A. Torfason.

Tillaga Jóhanns Ólafssonar og Sveins A. Torfasonar felld með 5 atkvæðum gegn tveimur atkvæðum þeirra Jóhanns og Sveins.
Tillaga Svanfríðar Ingu samþykkt með 5 atkvæðum, Jóhann Ólafsson og Sveinn Torfason sitja hjá.
Samningurinn í heild sinni samþykktur með 5 atkvæðum, Jóhann Ólafsson greiðir atkvæði á móti og Sveinn Torfason situr hjá.

4.5. 201202017 - Frá Greiðri leið; Eigendafundur 6. febrúar 2012.
Til máls tóku:

Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Jóhann Ólafsson.
4.6. 201202007 - Frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra; 141. fundur frá 25. janúar 2012.
4.7. 201202008 - Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 793. fundur stjórnar Sambandsins.
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.


5. 1201019F - Fræðsluráð - 162
5.1. 201112041 - Fjölmenningarstefna skóla
5.2. 201201070 - Grænfáni
5.3. 201202004 - Styrkumsóknir 2012
5.4. 201202002 - Starfið í nýjum skóla í Árskógi 2012
5.5. 201111007 - Skólanámskrá Grunnskóla Dalvíkurbyggðar
5.6. 201201062 - Endurskoðun á samningi við Símey um rekstur námsvers
Til máls tók:
Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Samþykkt samhljóða.

5.7. 201201001 - Önnur mál 2012
Til máls tóku:
Svanfríður Inga Jónasdóttir, sem gerði grein fyrir að bókuð dagsetning um sumarlokun leikskóla er röng en tillaga er um að sumarlokun hefjist frá og með 16. júlí 2012 og er til og með 15. ágúst 2012.

Valdís Guðbrandsdóttir.
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.


6. 1201016F - Íþrótta- og æskulýðsráð - 33
6.1. 201110107 - Gamla íþróttahúsið á Dalvík
6.2. 201110056 - Skipulag íþróttasvæðis
6.3. 1106038 - Reglur um notkun Íþróttamiðstöðvar aðra en íþróttastarfsemi
6.4. 201201052 - Endurskoðun á reglum afreks- og styrktarsjóðs

Til máls tóku:
Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Guðmundur St. Jónsson.
Samþykkt samhljóða.
6.5. 201201054 - Útleiga á húsnæði félagsmiðstöðvar í Víkurröst
Samþykkt samhljóða.
6.6. 201110039 - Klifurveggur
6.7. 201201046 - Skólahreysti 2012 - Umsókn um styrk
6.8. 201202006 - Niðurfelling á Húsaleigu á Rimum

Til máls tóku:

Guðmundur St. Jónsson, sem leggur til að þessum lið verði vísað aftur til íþrótta- og æskulýðsráðs til umfjöllunar.
Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Tillaga Guðmundar St. Jónssonar samþykkt samhljóða.

6.9. 201201071 - Gjaldskrá vegna elli-og örorkulífeyrisþega í líkamsrækt Íþróttamiðstöðvar
Til máls tóku:

Sveinn Torfason.
Svanfríður Inga Jónasdóttir.

Sveinn Torfason leggur fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn samþykkir að beina því til ráðsins að ganga frá gjaldskrá vegna mótshalds og fella inn í gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar fyrir næsta bæjarstjórnarfund.
Gjaldskráin samþykkt með 6 atkvæðum, Sveinn Torfason situr hjá.
Tillaga Sveins Torfasonar samþykkt samhljóða.

6.10. 201201053 - Önnur mál ÍÆ 2012
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.


7. 1201018F - Umhverfisráð - 221
7.1. 201110056 - Skipulag íþróttasvæðis
7.2. 201112047 - Deiliskipulag í landi Upsa
7.3. 201201042 - Deiliskipulag Ytra-Holti.

Samþykkt samhljóða.
7.4. 1107001 - Samningsdrög um orkumælar
Samþykkt samhljóða.
7.5. 201111013 - Landsskipulagsstefna 2012-2024
7.6. 201201004 - Frá Moltu; Ný gjaldskrá vegna móttöku lífræns úrgangs
7.7. 201201019 - Frá Flokkun Eyjafjarðar; Gjald Flokkunar fyrir árið 2012.

Til máls tóku:
Svanfríður Inga Jónasdóttir, sem leggur til að þessum lið verði vísað til bæjarráðs.
Tillaga Svanfríðar Ingu samþykkt samhljóða.

7.8. 201112049 - Frá bæjarráði; Styrkveitingar; almennar reglur Dalvíkurbyggðar
7.9. 201201023 - Frá Umferðarstofu; Hreinsun á snjó af samgönguæðum
7.10. 201112025 - Frá Gunnari Jónssyni;Stofnun lóðar og skipting lands

Samþykkt samhljóða.
7.11. 201201061 - Selá,stofnun lóðar undir núverandi hús.Sjá má í Gopro 2008100004
Samþykkt samhljóða.
7.12. 1108014 - Umsókn um að reisa 47,2 m2 sumarhús á lóð B6 við Hamar
Samþykkt samhljóða.

Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.

8. 201202033 - Frá Valdísi Guðbrandsdóttur; Ósk um leyfi frá störfum í bæjarstjórn vegna fæðingarorlofs.
Tekið fyrir erindi frá Valdísi Guðbrandsdóttur, dagsett þann 10. febrúar 2012, þar sem fram kemur að hún óskar eftir leyfi frá störfum í bæjarstjórn í 7 mánuði vegna fæðingarorlofs, miðað við frá 15. mars 2012. Einnig óskar Valdís eftir leyfi frá störfum í bæjarráði og félagsmálaráði þar sem hún er aðalmaður.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum að veita Valdísi Guðbrandsdóttur leyfi frá störfum í bæjarstjórn, bæjarráði og félagsmálaráði í samræmi við ofangreint. Valdís Guðbrandsdóttir situr hjá.

9. 201202034 - Frá Ragnari K. Stefássyni; Beiðni um lausn frá störfum sem varamaður í atvinnumálanefnd.
Tekið fyrir rafbréf frá Ragnari K. Stefánssyni, dagsett þann 10. febrúar 2012, þar sem fram kemur að hann óskar eftir lausn frá störfum sem varamaður í atvinnumálanefnd Dalvíkurbyggðar fyrir A-listann vegna fjarveru hans frá landinu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að veita Ragnari K. Stefánssyni, Laugasteini í Svarfaðardal, lausn frá störfum sem varamaður í atvinnumálanefnd.

10. 201202035 - Kosningar;a) Aðalmaður og varamaður í bæjarráð í stað Valdísar Guðbrandsdóttur vegna fæðingarorlofs.b) Varamaður í atvinnumálanefnd í stað Ragnars K. Stefánssonar.
Til máls tóku:

Forseti leggur fram eftirfarandi tillögu:
Í stað Valdísar Guðbrandsdóttur komi Marinó Þorsteinsson inn sem aðalmaður í bæjarráð og Guðmundur St. Jónsson verður áfram varamaður.
Lagt er til að Óli Þór Jóhannsson verði varamaður í atvinnumálanefnd.
Ekki komu fram aðrar tillögur.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ofangreindar tillögur.

11. 201111090 - Þriggja ára áætlun 2013-2015. Síðari umræða.
Til máls tók:
Svanfríður Inga Jónasdóttir, sem gerði grein fyrir að engar breytingar hafa verið gerðar á áætluninni á milli umræðna í bæjarstjórn og engar tillögur hafa komið fram um breytingar á áætluninni.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða þriggja ára áætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2013-2015.

12. 1201014F - Bæjarstjórn - 231
Til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:44.


Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Þjónustuver
  • Fjölmenningasetur
  • Skólamál í Árskógi
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu

Viðburðadagatal

« maí 2012 »
m þ m f f l s
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31